FRÉTT VERÐLAG 24. APRÍL 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 101,4 stig (2005=100) í mars sl. og hækkaði um 0,5% frá febrúar. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 101,9 stig, hækkaði um 1,1% frá fyrra mánuði.

Frá mars 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 2,2% á evrusvæðinu og 2,0% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,6% í Lettlandi, 4,3% í Slóvakíu og 4,5% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,9% í Póllandi, 1,2% í Finnlandi og 1,3% í Austurríki.


Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Í Bandaríkjunum og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Febrúar 2005 til febrúar 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.