FRÉTT VERÐLAG 19. APRÍL 2004
Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 114,6 stig (1996=100) í mars sl., hækkaði um 0,6% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 126,6 stig, hækkaði um 0,7% frá febrúar.
     Frá mars 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,5% að meðaltali í ríkjum EES, 1,7% á evrusvæðinu og 1,0% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 2,9% í Grikklandi og 2,3% á Ítalíu. Í Noregi og Finnlandi mældist 0,4% verðhjöðnun, í Danmörku og Svíþjóð var verðbólgan 0,4%.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Febrúar 2003 - febrúar 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.