FRÉTT VERÐLAG 18. JÚNÍ 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,5 stig (1996=100) í maí sl., hækkaði um 0,4% frá apríl. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,2 stig, hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði.
Frá maí 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að meðaltali í ríkjum EES, 2,5% á evrusvæðinu og 2,4% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 8,2% í Slóvakíu og 7,8% í Ungverjalandi. Í Finnlandi mældist 0,1% verðhjöðnun og í Litháen var verðbólgan 1,0%.
     Frá maí 2004 eru 27 lönd á Evrópska efnahagssvæðinu og eru meðaltöl fyrir Evrópska efnahagssvæðið nú miðuð við öll 27 ríkin.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Apríl 2003 - apríl 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.