FRÉTT VERÐLAG 19. JÚLÍ 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,5 stig (1996=100) í júní sl. og var hún óbreytt frá maí. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,9 stig, hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.
       Frá júní 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og 2,9% á Íslandi.
       Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 8,1% í Slóvakíu og 7,5% í Ungverjalandi. Í Finnlandi mældist 0,1% verðhjöðnun og í Danmörku var verðbólgan 0,9%.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Maí 2003 - maí 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.