FRÉTT VERÐLAG 19. ÁGÚST 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 117,8 stig (1996=100) í júlí sl. og lækkaði um 0,1% frá júní. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,1 stig, hún lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.

Frá júlí 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 2,2% á evrusvæðinu og 0,5% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,3% í Lettlandi og 4,0% í Lúxemborg. Minnst var verðbólgan 0,5% á Íslandi, 0,7% í Svíþjóð og 0,9% í Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Júní 2004 - júní 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.