Frá janúar 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,0% að meðaltali í ríkjum EES, 1,9% á evrusvæðinu og 2,7% á Íslandi.
Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,7% í Lettlandi og 4,2% í Grikklandi og Eistlandi. Minnst var verðbólgan í Svíþjóð, 0,5% og í Finnlandi var 0,2% verðhjöðnun.

| Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur. | 
| 
 1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.  |