FRÉTT VERÐLAG 18. MARS 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 113,9 stig (1996=100) í febrúar sl., hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 125,7 stig, lækkaði um 0,3% frá janúar.
     Frá febrúar 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,5% að meðaltali í ríkjum EES, 1,6% á evrusvæðinu og 1,4% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 2,6% í Grikklandi og 2,4% í Lúxemborg og á Ítalíu. Í Noregi mældist 1,5% verðhjöðnun og í Finnlandi var verðbólgan 0,2%.

      Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Janúar 2003 - janúar 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.