FRÉTT VERÐLAG 20. JANÚAR 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 119,0 stig (1996=100) í desember sl. og hækkaði um 0,3% frá nóvember. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 131,3 stig, hún hækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.

Frá desember 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali í ríkjum EES, 2,2% á evrusvæðinu og 1,0% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,1% í Lettlandi, 3,9% í Slóvakíu og 3,7% á Spáni. Minnst var verðbólgan 0,8%  í Póllandi, 1,0% á Íslandi og 1,1% í Finnlandi.

Meðalvísitala ársins 2005 fyrir EES-ríkin var 117,8 stig, 2,2% hærri en meðaltalið árið 2004. Sambærilegar tölur voru 2,0% hvort árið 2004 og 2003.

Meðaltal samræmdu vísitölunnar fyrir Ísland árið 2005 var 129,9 stig, 1,4% hærra en meðaltalið árið 2004. Sambærilegar tölur voru 2,3% árið 2004 og 1,4% árið 2003.


Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Nóvember 2004 - nóvember 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.