FRÉTT VERÐLAG 18. MAÍ 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,1 stig (2005=100) í apríl sl. og hækkaði um 0,7% frá mars. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 102,7 stig, hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði.

Frá apríl 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og 3,3% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,1% í Lettlandi, 4,4% í Slóvakíu og 4,3% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 1,2% í Póllandi og 1,5% í Finnlandi.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Mars 2005 til mars 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.