FRÉTT VERÐLAG 20. MAÍ 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 117,5 stig (1996=100) í apríl sl. og hækkaði um 0,4% frá mars. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,2 stig, hún lækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði, aðallega vegna mikillar samkeppni á dagvörumarkaði. 

Frá apríl 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,1% að meðaltali, bæði  í ríkjum EES og á evrusvæðinu og 1,6% á Íslandi. 

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,1% í Lettlandi og 4,7% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,4% í Svíþjóð, og 1,1% í Finnlandi.

 

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Mars 2004 - mars 2005

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.