FRÉTT VERÐLAG 19. MAÍ 2004

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 115,0 stig (1996=100) í apríl sl., hækkaði um 0,3% frá mars. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 127,2 stig, hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.
     Frá apríl 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 1,8% að meðaltali í ríkjum EES, 2,0% á evrusvæðinu og 1,5% á Íslandi.
     Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 3,1% í Grikklandi og 2,7% á Spáni og í Lúxemborg. Í Finnlandi mældist 0,4% verðhjöðnun og í Danmörku var verðbólgan 0,5%.
     Vakin er athygli á að nú eru birtar vísitölur fyrir hin 10 nýju aðildarríki Evrópusambandsins. Meðaltöl fyrir ESB og Evrópska efnahagssvæðið eru þó enn miðuð við 15 ríki.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.
 

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Mars 2003 - mars 2004.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.