FRÉTT VERÐLAG 18. SEPTEMBER 2006

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,5 stig (2005=100) í ágúst sl. og hækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 106,2 stig, hækkaði um 0,5% frá júlí.

Frá ágúst 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu og 7,1% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,1% á Íslandi og 6,8% í Lettlandi. Minnst var verðbólgan 1,3% í Finnlandi og 1,6% í Svíþjóð.

Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og
Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands
2) Bráðabirgðatölur
3) Júlí 2005 til júlí 2006

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.