FRÉTT VERÐLAG 19. SEPTEMBER 2005

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 118,1 stig (1996=100) í ágúst sl. og hækkaði um 0,3% frá júlí. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 128,8 stig, hún lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.

Frá ágúst 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES og á evrusvæðinu og 0,4% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,3% í Lettlandi, 4,3% í Lúxemborg og 4,2% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,4% á Íslandi en 1,0%  í Svíþjóð og Finnlandi.


Í EES ríkjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðsvísitölu. Í Bandaríkjunum, Japan og Sviss er miðað við neysluverðsvísitölur.

1) Verðbólga í viðskiptalöndum mæld með gengisvog Seðlabanka Íslands.
2) Bráðabirgðatölur.
3) Júlí 2004 - júlí 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.