FRÉTT VERÐLAG 10. DESEMBER 2008

Gefin hafa verið út Hagtíðindi með niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna árin 2005-2007. Niðurstöður eru sundurliðaðar eftir búsetu, heimilisgerð, tekju- og útgjaldahópum. Heildarniðurstöður eru bornar saman við útgjaldarannsóknina 2004-2006.

Neysluútgjöld á heimili árin 2005–2007 hafa hækkað um 7,7% frá tímabilinu 2004–2006 og voru tæpar 396 þúsund krónur á mánuði, eða 165 þúsund krónur á mann. Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,47 einstaklingum í 2,40 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 10,7%.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni eru um 420 þúsund krónur á mánuði, tæpar 175 þúsund krónur á mann. Ráðstöfunartekjur flestra hópa eru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin eru að meðaltali um 94% af ráðstöfunartekjum.

Í úrtaki voru 3.522 heimili, 1.603 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun því rúm 45%.

Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2005-2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.