FRÉTT VERÐLAG 18. DESEMBER 2007

Gefin hafa verið út Hagtíðindi með niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna árin 2004-2006. Niðurstöður eru sundurliðaðar eftir búsetu, heimilisgerð, tekju- og útgjaldahópum. Heildarniðurstöður eru bornar saman við útgjaldarannsóknina 2003-2005.

Neysluútgjöld á heimili árin 2004–2006 hafa hækkað um 7,7% frá tímabilinu 2003–2005 og voru tæpar 368 þúsund krónur á mánuði. Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,5 einstaklingum í 2,47 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 9,1%.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni eru um 390 þúsund krónur á mánuði, tæpar 160 þúsund krónur á mann. Ráðstöfunartekjur flestra hópa eru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin eru að meðaltali um 94% af ráðstöfunartekjum.

Í úrtaki voru 3.550 heimili, 1.607 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun því aðeins um 45%.

Rannsókn á útgjöldum heimilanna 2004-2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.