FRÉTT VERÐLAG 16. JÚNÍ 2016

Magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi árið 2015 var 24% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum. Ísland var 9. í röð 37 Evrópuríkja (Evrópusambandsríkjanna auk Íslands, Noregs, Sviss, Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu).

Magn vergrar landsframleiðslu á mann árið 2015 var hæst í Lúxemborg 171% yfir meðaltali ESB ríkja en þar á eftir kom Noregur þar sem verg landsframleiðsla á mann var 63% yfir meðaltali ESB ríkja. Lúxemborg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.

Magn einstaklingsbundinnar neyslu á mann á Íslandi var 15% yfir meðaltali ESB ríkja samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2015. Þar var Ísland 7. í röð landanna 37 og var Lúxemborg í fyrsta sæti 37% yfir meðaltali ESB ríkjanna. 

Hagstofa Íslands tekur þátt í samstarfi hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD um útreikning jafnvirðisgilda (PPP). Þau eru notuð til að umreikna hagrænar stærðir til sambærilegs verðlags svo unnt sé að bera saman rauntölur á milli landa.

Frétt Eurostat

Gagnasafn Eurostat um jafnvirðisgildi (PPP)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.