FRÉTT VERÐLAG 20. JÚNÍ 2014

Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 12. desember 2014 13:15 frá upprunalegri útgáfu.

Samkvæmt fyrstu bráðabirgðatölum fyrir árið 2013 var magn vergrar landsframleiðslu á íbúa á Íslandi 16% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28 (ESB28) árið 2013. Í samanburði 37 Evrópuríkja (ESB28 auk Íslands, Noregs, Sviss. Tyrklands, Svartfjallalands, Serbíu, Bosníu-Hersegóvínu, Albaníu og Makedóníu) var Ísland 11. í röðinni yfir verga landsframleiðslu á íbúa sama ár.

Magn vergrar landsframleiðslu á íbúa var mest í Lúxemborg 164% yfir meðaltali ESB28 en þar á eftir kom Noregur þar sem verg landsframleiðsla á íbúa var 91% yfir meðaltali ESB28. Lúxemborg sker sig úr hópnum en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan landsins og telst því ekki til íbúafjöldans.

 

Magn einstaklingsbundin neysla á mann á Íslandi var 13% yfir meðaltali ESB28 samkvæmt fyrstu bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2013. Þar var Ísland 11. í röð landanna 37 en Noregur í fyrsta sæti.

Verðlag einkaneyslu í löndunum 37 var hæst í Sviss, 56% yfir meðaltali ESB28 og Noregi þar sem það var 55% yfir meðaltali ESB28. Verðlag einkaneyslu á Íslandi var 12% yfir meðaltali ESB28 og 11. hæsta af löndunum 37.

Hagstofa Íslands tekur þátt í samstarfi hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat, og OECD um útreikning jafnvirðisgilda (PPP) til þess að meta með reglubundnum hætti magntölur vergrar landsframleiðslu í þátttökuríkjunum.

 

Gagnasafn Eurostat um jafnvirðisgildi (PPP)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.