FRÉTT VERÐLAG 30. JANÚAR 2013

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2012 var 214,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og lækkaði um 1,1% frá nóvember 2012. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 269,8 stig, sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 225,7 stig, lækkaði um 2,0% (vísitöluáhrif -0,7%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,3% (-0,1%) en vísitala fyrir annan iðnað lækkaði um 1,8% (-0,3%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 1,1% (-0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um
1,1% (-0,8%).

Miðað við desember 2011 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 1,2% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 1,2%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju lækkað um 0,4% en matvælaverð hefur hækkað um 2,9%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2011
Desember 0,1 1,9 -1,6 -0,4 -0,2 0,2
2012
Janúar 1,1 1,6 0,4 0,2 1,0 1,1
Febrúar 1,9 -0,8 5,2 0,0 0,3 2,4
Mars 2,7 2,2 4,5 -0,2 0,7 3,3
Apríl 0,5 1,2 0,0 0,6 0,5 0,5
Maí -2,5 -1,7 -5,0 0,2 0,1 -3,3
Júní -1,2 -0,7 -2,0 -0,3 -0,1 -1,5
Júlí -3,3 -1,7 -6,4 1,9 -0,6 -4,2
Ágúst -2,7 -3,4 -4,6 -0,6 0,6 -3,7
September 1,8 3,3 0,7 1,2 -0,5 2,5
Október 3,9 0,6 11,2 0,1 -1,0 5,4
Nóvember 0,4 0,8 -1,1 0,2 1,3 0,2
Desember -1,1 -0,1 -2,0 -0,3 -1,1 -1,1

Breyting frá fyrra ári (%)
Vísitala  Afurðir  Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2011
Desember 6,7 18,4 -6,4 7,3 8,0 6,3
2012
Janúar 5,7 16,3 -8,1 7,5 9,4 4,6
Febrúar 4,9 12,7 -6,5 6,4 8,4 3,9
Mars 6,4 12,9 -3,9 5,0 8,2 5,9
Apríl 5,3 12,4 -3,4 5,4 7,7 4,5
Maí 1,0 9,6 -12,3 5,3 7,4 -0,8
Júní -0,7 6,9 -12,7 3,7 7,4 -2,9
Júlí -4,2 4,9 -17,9 4,2 5,1 -6,8
Ágúst -6,1 0,9 -19,3 2,0 4,4 -9,1
September -3,7 4,1 -16,5 2,0 2,7 -5,7
Október 1,0 2,8 -2,8 2,8 1,7 0,8
Nóvember 2,5 3,1 0,1 2,8 2,1 2,4
Desember 1,2 1,2 -0,4 2,9 1,1 1,1

Við mat á verðbreytingum í þessari frétt má hafa til hliðsjónar að meðalverð erlends gjaldeyris í desember 2012 var 0,8% hærra en í nóvember 2012 og 4,8% hærra en í desember 2011. Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.