FRÉTT VERÐLAG 30. JÚNÍ 2015

Vísitala framleiðsluverðs í maí 2015 var 222,6 stig (4. fjórðungur 2005=100) og er því óbreytt frá fyrri mánuði. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 274,6 stig, sem er lækkun um 0,9% (vísitöluáhrif -0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 228,3 stig, lækkaði um 0,5% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,7% (0,1%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,2% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 1,2% (0,3%) milli mánaða en vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 0,4% (-0,3%).

Miðað við maí 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,5% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 9,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 18,9% en verð á matvælum staðið í stað.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2014            
Maí 1,7 0,5 7,3 0,0 -1,9 2,9
Júní 1,0 1,4 -2,2 -0,1 2,6 0,4
Júlí 0,8 1,3 4,4 0,1 -2,3 1,9
Ágúst 3,5 2,4 7,7 0,1 0,5 4,6
September 1,7 -1,8 4,8 -0,4 1,4 1,9
Október 1,2 2,0 0,7 0,7 0,7 1,3
Nóvember 0,6 1,5 0,2 -0,3 -0,2 0,8
Desember 3,3 2,1 6,5 0,2 0,9 4,2
2015            
Janúar 0,2 1,0 -0,6 -0,2 -0,1 0,3
Febrúar -2,0 -1,9 -4,2 -0,5 0,2 -2,8
Mars 2,4 1,6 5,0 -0,3 0,2 3,3
Apríl -0,8 0,7 -3,3 0,0 0,3 -1,2
Maí 0,0 -0,9 -0,5 0,7 1,2 -0,4
Breyting frá fyrra ári (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2014            
Maí -2,2 1,6 -8,3 1,7 1,6 -3,5
Júní -1,8 1,6 -9,8 2,1 3,9 -3,6
Júlí -0,8 3,0 -5,8 2,3 1,8 -1,7
Ágúst 5,6 6,0 7,0 2,5 4,3 6,1
September 4,4 2,5 8,5 1,6 2,9 4,9
Október 6,5 4,1 12,1 0,9 3,9 7,4
Nóvember 6,1 4,8 9,1 0,5 4,2 6,8
Desember 12,2 9,6 24,9 1,1 2,9 15,6
2015            
Janúar 14,2 14,0 24,8 0,5 3,3 18,3
Febrúar 12,1 13,2 22,0 0,4 1,2 16,0
Mars 15,9 13,3 31,5 0,0 2,5 20,9
Apríl 14,4 11,2 28,2 -0,7 2,2 18,9
Maí 12,5 9,6 18,9 0,0 5,4 15,0

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.