FRÉTT VERÐLAG 30. JANÚAR 2015

Vísitala framleiðsluverðs í desember 2014 var 223,0 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 3,3% frá nóvember 2014. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 273,5 stig, sem er hækkun um 2,1% (vísitöluáhrif 0,7%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 237,6 stig, hækkaði um 6,5% (2,2%). Vísitalan fyrir matvæli hækkaði um 0,2% (0%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 2,2% (0,4%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands hækkaði um 0,9% (0,2%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um
4,2% (3,1%).

Miðað við desember 2013 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 12,2% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 9,6%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 24,9% og matvælaverð hefur hækkað um 1,1%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2013            
Desember -2,3 -2,4 -7,0 -0,3 2,2 -3,7
2014            
Janúar -1,6 -3,0 -0,6 0,4 -0,5 -2,0
Febrúar -0,1 -1,1 -2,0 -0,4 2,4 -0,9
Mars -0,9 1,5 -2,7 0,0 -1,1 -0,9
Apríl 0,5 2,6 -0,8 0,7 0,6 0,5
Maí 1,7 0,5 7,3 0,0 -1,9 2,9
Júní 1,0 1,4 -2,2 -0,1 2,6 0,4
Júlí 0,8 1,3 4,4 0,1 -2,3 1,9
Ágúst 3,5 2,4 7,7 0,1 0,5 4,6
September 1,7 -1,8 4,8 -0,4 1,4 1,9
Október 1,2 2,0 0,7 0,7 0,7 1,3
Nóvember 0,6 1,5 0,2 -0,3 -0,2 0,8
Desember 3,3 2,1 6,5 0,2 0,9 4,2
Breyting frá fyrra ári (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2013            
Desember -7,1 -7,5 -15,8 3,5 4,1 -10,3
2014            
Janúar -12,3 -10,8 -23,0 3,3 1,7 -16,3
Febrúar -9,9 -8,9 -22,7 2,1 5,2 -14,2
Mars -9,5 -4,0 -23,5 1,2 2,9 -13,0
Apríl -3,3 2,9 -14,9 2,0 4,5 -5,6
Maí -2,2 1,6 -8,3 1,7 1,6 -3,5
Júní -1,8 1,6 -9,8 2,1 3,9 -3,6
Júlí -0,8 3,0 -5,8 2,3 1,8 -1,7
Ágúst 5,6 6,0 7,0 2,5 4,3 6,1
September 4,4 2,5 8,5 1,6 2,9 4,9
Október 6,5 4,1 12,1 0,9 3,9 7,4
Nóvember 6,1 4,8 9,1 0,5 4,2 6,8
Desember 12,2 9,6 24,9 1,1 2,9 15,6

Talnaefni

 


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.