FRÉTT VERÐLAG 27. FEBRÚAR 2015

Vísitala framleiðsluverðs í janúar 2015 var 223,4 stig (4. fjórðungur 2005 = 100) og hækkaði um 0,2% frá desember 2014. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir var 276,1 stig, sem er hækkun um 1,0% (vísitöluáhrif 0,3%) frá fyrri mánuði og vísitala fyrir stóriðju var 236,0 stig, lækkaði um 0,6% (-0,2%). Vísitalan fyrir matvæli lækkaði um 0,2% (0%) og vísitala fyrir annan iðnað hækkaði um 0,7% (0,1%).

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% (0%) milli mánaða og vísitala fyrir útfluttar afurðir hækkaði um
0,3% (0,2%).

Miðað við janúar 2014 hefur vísitala framleiðsluverðs hækkað um 14,2% og verðvísitala sjávarafurða hækkað um 14,0%. Á sama tíma hefur verð á afurðum stóriðju hækkað um 24,8% og matvælaverð hefur hækkað um 0,5%.

Breyting frá fyrri mánuði (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2014            
Janúar -1,6 -3,0 -0,6 0,4 -0,5 -2,0
Febrúar -0,1 -1,1 -2,0 -0,4 2,4 -0,9
Mars -0,9 1,5 -2,7 0,0 -1,1 -0,9
Apríl 0,5 2,6 -0,8 0,7 0,6 0,5
Maí 1,7 0,5 7,3 0,0 -1,9 2,9
Júní 1,0 1,4 -2,2 -0,1 2,6 0,4
Júlí 0,8 1,3 4,4 0,1 -2,3 1,9
Ágúst 3,5 2,4 7,7 0,1 0,5 4,6
September 1,7 -1,8 4,8 -0,4 1,4 1,9
Október 1,2 2,0 0,7 0,7 0,7 1,3
Nóvember 0,6 1,5 0,2 -0,3 -0,2 0,8
Desember 3,3 2,1 6,5 0,2 0,9 4,2
2015            
Janúar 0,2 1,0 -0,6 -0,2 -0,1 0,3
Breyting frá fyrra ári (%)
  Vísitala    Afurðir    Innlend Útfluttar
  framleiðsluverðs Sjávarafurðir stóriðju Matvæli sala afurðir
2014            
Janúar -12,3 -10,8 -23,0 3,3 1,7 -16,3
Febrúar -9,9 -8,9 -22,7 2,1 5,2 -14,2
Mars -9,5 -4,0 -23,5 1,2 2,9 -13,0
Apríl -3,3 2,9 -14,9 2,0 4,5 -5,6
Maí -2,2 1,6 -8,3 1,7 1,6 -3,5
Júní -1,8 1,6 -9,8 2,1 3,9 -3,6
Júlí -0,8 3,0 -5,8 2,3 1,8 -1,7
Ágúst 5,6 6,0 7,0 2,5 4,3 6,1
September 4,4 2,5 8,5 1,6 2,9 4,9
Október 6,5 4,1 12,1 0,9 3,9 7,4
Nóvember 6,1 4,8 9,1 0,5 4,2 6,8
Desember 12,2 9,6 24,9 1,1 2,9 15,6
2015            
Janúar 14,2 14,0 24,8 0,5 3,3 18,3

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.