Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir október 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 65,1 milljarði króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 62,4 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,7 milljarða króna. Í október 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,1 milljarð króna á gengi hvors árs. Skip og flugvélar hafa óveruleg áhrif á bráðabirgðaniðurstöður mánaðarins.

Í október 2019 var verðmæti vöruútflutnings 4,1 milljarði króna hærra en í október 2018, eða 6,8% á gengi hvors árs. Mest var hækkunin í viðskiptum með sjávarafurðir.

Verðmæti vöruinnflutnings í október 2019 var 10,7 milljörðum króna lægra en í október 2018, eða 14,7% á gengi hvors árs. Mest var lækkunin í viðskiptum með hrávörur og rekstarvörur og eldsneyti og smurolíur.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015–2019, fob-verð í milljörðum króna

Talnaefni