FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. DESEMBER 2018

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir nóvember 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings rúmlega 54,3 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 72,1 milljarði króna. Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,7 milljarða króna. Í nóvember 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í nóvember 2018 var því 6,8 milljörðum króna meiri en á sama tíma árið áður. Viðskipti með skip og flugvélar hafa óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn í mánuðinum.

Í nóvember 2018 var verðmæti vöruútflutnings 8,6 milljörðum króna hærra en í nóvember 2017 eða 18,7% á gengi hvors árs. Hækkunina á milli ára má að mestu rekja til aukins verðmætis í útflutningi á iðnaðarvörum.

Verðmæti vöruinnflutnings í nóvember 2018 var 15,4 milljörðum króna hærra en í nóvember 2017 eða 27,1% á gengi hvors árs. Munurinn á milli ára skýrist aðallega af auknum innflutningi á hrávörum,rekstrarvörum og fjárfestingavörum (þó ekki flutningstækjum).

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015–2018, fob-verð í milljörðum króna

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.