Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir mars 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 49,6 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 62,9 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um rúmlega 13,2 milljarða króna. Í mars 2018 voru vöruviðskiptin hins vegar óhagstæð um 13,5 milljarða króna á gengi hvors árs. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu óveruleg áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn í mars 2019 en vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla var óhagstæður um 12,9 milljarða í sama mánuði árið áður.

Í mars 2019 var verðmæti vöruútflutnings 6,4 milljörðum króna hærri en í mars 2018, eða 14,8% á gengi hvors árs. Mest var aukningin í viðskiptum með sjávarafurðir.

Verðmæti vöruinnflutnings í mars 2019 var 6,1 milljarði króna hærri en í mars 2018 eða 10,7% á gengi hvors árs. Mest var aukning var í innflutningi á fjárfestingarvörum.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015-2019

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni