FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. JÚNÍ 2018

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir maí 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings 53,3 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings tæpum 66,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,8 milljarða króna.

Í maí 2018 var verðmæti vöruútflutnings 4,1 milljörðum króna hærra en í maí 2017 eða 8,2% á gengi hvors árs. Hækkun má að mestu leyti rekja til aukningar í útflutningi sjávarafurða.

Verðmæti vöruinnflutnings í maí var 6,7 milljörðum króna lægri en í maí 2017 eða 9,3% á gengi hvors árs. Þessi munur milli tímabila skýrist aðallega af innflutningi á skipum og flugvélum.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.