FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 20. JÚNÍ 2016

Á árinu 2015 voru fluttar út vörur fyrir 626,1 milljarð króna fob en inn fyrir 656,7 milljarða króna fob, 700,2 milljarða króna cif. Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti út- og innflutnings, sem nam 30,6 milljörðum króna en 4,2 milljarða króna afgangur var árið 2014 á gengi hvors árs1. Verðmæti vöruútflutnings jókst um 6% frá fyrra ári, á gengi hvors árs, en verðmæti vöruinnflutnings jókst um 12%. Hlutur iðnaðarvöru var 52,9% alls vöruútflutnings og hlutur sjávarafurða var 42,3% en í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur með 28,2% hlutdeild og fjárfestingarvörur með 20,9% hlutdeild. Stærstu viðskiptalönd voru Holland (Niðurland) í vöruútflutningi og Noregur í vöruinnflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í vöruútflutningi sem vöruinnflutningi.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-desember 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Desember Jan.-desember ári á gengi hvors árs,
  2014 2015 2014 2015  % jan.-desember
           
Útflutningur alls fob 49.004,9 48.080,8 590.501,7 626.091,9 6,0
Sjávarafurðir 18.860,5 19.483,8 243.956,3 264.665,4 8,5
Landbúnaðarvörur 1.212,2 1.321,2 11.691,8 13.267,6 13,5
Iðnaðarvörur 27.649,1 24.195,0 309.989,6 331.060,2 6,8
Aðrar vörur 1.283,1 3.080,7 24.864,0 17.098,7 -31,2
           
Innflutningur alls fob 45.257,6 57.347,5 586.251,8 656.661,9 12,0
Matvörur og drykkjarvörur 4.532,3 4.474,0 54.749,1 65.036,8 18,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.128,0 12.280,0 159.919,3 184.882,8 15,6
Eldsneyti og smurolíur 4.889,8 4.229,6 103.148,5 83.123,8 -19,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.983,5 12.006,2 124.173,9 137.382,1 10,6
Flutningatæki 4.787,8 16.994,7 68.003,7 103.893,4 52,8
Neysluvörur ót.a. 6.927,5 7.332,0 74.226,1 81.398,8 9,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 8,8 31,1 2.031,2 944,2 -53,5
           
Vöruskiptajöfnuður 3.747,3 -9.266,8 4.249,9 -30.570,1 .


1Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.