Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júní 2016 nam fob verðmæti vöruútflutnings 56,2 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 68,5 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,3 milljarða króna.
Athygli skal vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum.