Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 51,6 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 70,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 18,6 milljarða króna. Í júlí 2018 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 18,5 milljarða króna á gengi hvors árs. Án skipa og flugvéla var vöruviðskiptajöfnuður óhagstæður um 18,2 milljarða króna í júlí 2019 en hann var óhagstæður um 20,6 milljarða í sama mánuði árið áður.

Í júlí 2019 var verðmæti vöruútflutnings 1,1 milljarði króna hærri en í júlí 2018, eða 2,2% á gengi hvors árs. Mest var breytingin í viðskiptum með sjávarafurðir.

Verðmæti vöruinnflutnings í júlí 2019 var 1,2 milljörðum króna hærri en í júlí 2018 eða 1,8% á gengi hvors árs. Mesta aukning á innflutningi milli ára var á fjárfestingavörum (þó ekki flutningatækjum) en á móti kom lækkun á eldsneyti og smurolíu.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015–2019, fob-verð í milljörðum króna

Talnaefni