FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. OKTÓBER 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í september voru fluttar út vörur fyrir rúma 46,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 49,7 milljarða króna fob (53,0 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 3,3 milljarða króna. Í september 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 8,4 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 405,7 milljarða króna en inn fyrir 495,3 milljarða króna fob (527,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 89,6 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,1 milljarð á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 72,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 74,0 milljörðum króna lægra, eða 15,4%, á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,5% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,5% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% lægra en á sama tíma árið áður. 

Innflutningur
Á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,4 milljörðum króna lægra, eða 0,3%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–september 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  September Jan.–september ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–september
           
Útflutningur alls fob 47.836,3 46.333,0 479.680,5 405.702,4 -15,4
Sjávarafurðir 22.485,5 19.877,5 201.345,2 176.402,7 -12,4
Landbúnaðarvörur 1.111,4 1.320,4 9.235,9 11.825,8 28,0
Iðnaðarvörur 23.035,9 23.812,7 257.027,7 204.313,4 -20,5
Aðrar vörur 1.203,5 1.322,4 12.071,7 13.160,6 9,0
           
Innflutningur alls fob 56.255,6 49.652,5 496.765,3 495.344,7 -0,3
Matvörur og drykkjarvörur 6.049,5 5.644,2 51.091,1 44.312,6 -13,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.713,6 14.263,9 145.258,4 128.264,9 -11,7
Eldsneyti og smurolíur 10.674,9 6.557,8 67.752,7 52.914,4 -21,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.690,5 9.989,9 98.729,7 107.211,7 8,6
Flutningatæki 5.128,6 5.936,8 73.670,3 96.448,3 30,9
Neysluvörur ót.a. 7.975,3 7.232,2 59.126,7 65.807,5 11,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 23,2 27,7 1.136,4 385,3 -66,1
           
Vöruskiptajöfnuður -8.419,3 -3.319,5 -17.084,8 -89.642,2 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.