FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í október voru fluttar út vörur fyrir tæpa 49,2 milljarða króna og inn fyrir rúma 47,6 milljarða króna fob (50,9 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,5 milljarða króna. Í október 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 4 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 454,9 milljarða króna en inn fyrir 543,0 milljarða króna fob (578,1 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 88,1 milljarði króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 21,1 milljarð á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 67 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 71,6 milljörðum króna lægra, eða 13,6%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 49,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 19,6% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 9,9% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum króna lægra, eða 0,9%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–október 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Október Jan.–október ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–september
           
Útflutningur alls fob 46.838,4 49.178,8 526.518,9 454.904,0 -13,6
Sjávarafurðir 19.994,5 23.056,6 221.339,7 199.482,0 -9,9
Landbúnaðarvörur 1.257,7 1.709,3 10.493,6 13.535,1 29,0
Iðnaðarvörur 24.583,1 22.081,3 281.610,8 226.394,6 -19,6
Aðrar vörur 1.003,0 2.331,6 13.074,7 15.492,2 18,5
           
Innflutningur alls fob 50.864,7 47.646,6 547.630,0 542.967,0 -0,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.484,0 4.466,7 55.575,1 48.777,9 -12,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.739,8 11.935,5 158.998,2 140.169,7 -11,8
Eldsneyti og smurolíur 5.307,4 6.302,2 73.060,1 59.225,2 -18,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 13.361,0 10.818,9 112.090,7 118.023,1 5,3
Flutningatæki 6.750,9 6.722,9 80.421,2 103.169,9 28,3
Neysluvörur ót.a. 7.204,5 7.386,9 66.331,3 73.202,4 10,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 17,1 13,5 1.153,5 398,8 -65,4
           
Vöruskiptajöfnuður -4.026,3 1.532,2 -21.111,1 -88.063,0 .

¹ Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.