FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í maí voru fluttar út vörur fyrir 46,8 milljarða króna og inn fyrir 64,1 milljarð króna fob (68,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,3 milljarða króna. Í maí 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Fyrstu fimm mánuði ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 226,6 milljarða króna en inn fyrir 275,8 milljarða króna fob (293,4 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 49,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin hagstæð um tæpa 6 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 55,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður.                                                                                                                               

Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 50 milljörðum króna lægra, eða 18,1%, á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 25,6% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,4% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,6% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 5,1 milljarði króna lægra, eða 1,9%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Samhliða þessari útgáfu er  birt á vef Hagstofu ný tafla með gögnum fyrir árið 2015. Um er að ræða sundurliðun eftir vöruflokkum og löndum á útflutningi og innflutningi.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-maí 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Maí Jan.-maí ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.-maí
           
Útflutningur alls fob 55.190,7 46.830,5 276.637,8 226.605,1 -18,1
Sjávarafurðir 23.651,0 20.868,0 112.435,8 98.270,3 -12,6
Landbúnaðarvörur 780,7 1.266,0 5.621,8 7.066,8 25,7
Iðnaðarvörur 28.484,2 22.095,4 152.554,9 113.576,1 -25,6
Aðrar vörur 2.274,7 2.601,2 6.025,3 7.692,0 27,7
           
Innflutningur alls fob 58.140,0 64.124,1 270.670,0 275.783,8 1,9
Matvörur og drykkjarvörur 5.900,3 5.503,8 26.067,4 23.339,9 -10,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.144,7 16.008,0 79.672,0 71.061,1 -10,8
Eldsneyti og smurolíur 7.163,8 5.540,5 31.523,7 21.944,1 -30,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.116,6 13.278,3 51.596,5 61.583,1 19,4
Flutningatæki 12.563,2 15.464,0 49.217,6 60.297,3 22,5
Neysluvörur ót.a. 6.227,1 8.304,2 31.993,0 37.322,4 16,7
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 24,3 25,3 599,8 235,9 -60,7
           
Vöruskiptajöfnuður -2.949,3 -17.293,6 5.967,8 -49.178,6 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.