FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í júlí voru fluttar út vörur fyrir 43,9 milljarða króna og inn fyrir 53,7 milljarða króna fob (57,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,8 milljarða króna. Í júlí 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 2,7 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 318,8 milljarða króna en inn fyrir 392,1 milljarð króna fob (417 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 73,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 6,9 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 66,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 66 milljörðum króna lægra, eða 17,1%, á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,7% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,5% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 13,6% lægra en á sama tíma árið áður. 

Innflutningur
Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 495 milljónum króna hærra, eða 0,1%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.

 

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júlí 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Júlí Jan.–júlí ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–júlí
           
Útflutningur alls fob 51.907,0 43.861,9 384.728,1 318.753,4 -17,1
Sjávarafurðir 20.494,3 19.684,3 160.364,0 138.503,2 -13,6
Landbúnaðarvörur 842,5 723,8 7.235,8 8.897,0 23,0
Iðnaðarvörur 29.256,6 22.014,4 208.633,9 161.185,7 -22,7
Aðrar vörur 1.313,6 1.439,5 8.494,4 10.167,6 19,7
           
Innflutningur alls fob 54.619,4 53.698,6 391.615,3 392.110,6 0,1
Matvörur og drykkjarvörur 6.915,1 4.668,8 39.286,2 33.383,9 -15,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.599,7 15.341,6 115.115,2 101.006,4 -12,3
Eldsneyti og smurolíur 9.534,6 7.178,6 50.572,7 37.655,1 -25,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.974,7 11.266,5 76.881,0 84.898,1 10,4
Flutningatæki 5.997,5 8.742,7 64.084,7 83.677,1 30,6
Neysluvörur ót.a. 6.430,8 6.468,5 44.822,8 51.146,8 14,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 167,0 31,9 852,8 343,2 -59,8
           
Vöruskiptajöfnuður -2.712,3 -9.836,6 -6.887,2 -73.357,1 .

                                                                                                                                                                         
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.