FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. MARS 2018

Vöruviðskiptajöfnuður
Í febrúar 2018 voru fluttar út vörur fyrir 46,1 milljarð króna og inn fyrir 58,2 milljarða króna fob (62 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um rúmlega 12 milljarða króna. Í febrúar 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 12,7 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í febrúar 2018 var því 0,7 milljörðum króna lægri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 5,5 milljörðum króna samanborið við 10,9 milljarða króna í febrúar 2017.

Á tímabilinu janúar til febrúar 2018 voru fluttar út vörur fyrir 94,5 milljarða króna en inn fyrir 111,2 milljarða (118,5 milljarða króna cif). Því var halli á vöruskiptum við útlönd sem nam 16,7 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 21,4 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn  janúar til febrúar er því 4,7 milljörðum lægri en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 10,0 milljörðum króna, samanborið við 21,3 milljarða króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 25,4 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 36,8% á gengi hvors árs¹. Iðnaðarvörur voru 53,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 19,4% hærra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 67,7% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukins útflutnings á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 20,7 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 22,9% á gengi hvors árs¹. Innflutningur jókst mest á eldsneyti og flugvélum.

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til febrúar 2017 og 2018  
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Febrúar Janúar-febrúar ári á gengi hvors árs, %
  2017 2018 2017 2018 jan-feb
           
Útflutningur alls fob 31.557,4 46.140,4 69.119,8 94.538,0 36,8
Sjávarafurðir 8.213,6 18.912,4 21.933,0 36.788,1 130,3
Landbúnaðarvörur 1.845,3 2.257,3 3.425,9 4.535,2 22,3
Iðnaðarvörur 20.688,2 23.411,4 42.137,4 50.318,9 13,2
Aðrar vörur 810,3 1.559,2 1.623,5 2.895,8 92,4
           
Innflutningur alls fob 44.291,0 58.160,3 90.475,7 111.192,7 22,9
Matvörur og drykkjarvörur 3.849,7 4.714,5 7.528,7 8.747,1 16,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.533,2 17.879,0 24.714,2 29.897,9 21,0
Eldsneyti og smurolíur 3.227,6 4.353,7 7.565,9 14.113,3 86,5
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.500,7 11.650,0 21.749,7 25.972,5 19,4
Flutningatæki 8.066,3 12.307,7 16.287,2 18.353,8 12,7
Neysluvörur ót.a. 6.081,6 7.071,6 12.565,9 13.865,4 10,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 32,0 183,8 64,1 242,7 278,7
           
Vöruviðskiptajöfnuður -12.733,6 -12.019,9 -21.355,9 -16.654,7 -22,0

 

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.