FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2018

Vöruviðskiptajöfnuður
Í apríl 2018 voru fluttar út vörur fyrir 46,6 milljarða króna og inn fyrir 62,3 milljarða króna fob (66,5 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 15,7 milljarða króna. Í apríl 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,5 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í apríl 2018 var því 5,2 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 10,9 milljörðum króna samanborið við 10,4 milljarða króna halla í apríl 2017.

Á tímabilinu janúar til apríl 2018 voru fluttar út vörur fyrir 184,3 milljarða króna en inn fyrir 230,6 milljarða (246,0 milljarða króna cif). Halli á vöruskiptum við útlönd nam því 46,3 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 47,7 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn janúar til apríl er því 1,4 milljörðum króna lægri en á sama tíma fyrir ári síðan. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 34,1 milljarði króna, samanborið við 43,6 milljarða króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 34,2 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 22,8% á gengi hvors árs¹. Iðnaðarvörur voru 54,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 16,2% hærra en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 39,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 32,9% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í öllum undirliðum sjávarútvegs en mestu munar um aukningu í frystum flökum og ferskum fiski.

Innflutningur
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 32,8 milljörðum króna hærri en á sama tímabili árið áður, eða 16,6% á gengi hvors árs¹. Mestu munar um innflutning á eldsneyti og fjárfestingu í flugvélum.

  

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til apríl 2017 og 2018
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Apríl Janúar-Apríl ári á gengi hvors árs, %
  2017 2018 2017 2018 jan-apr
           
Útflutningur alls fob 41.243,5 46.584,0 150.069,2 184.268,7 22,8
Sjávarafurðir 16.803,4 17.739,0 54.271,0 72.140,3 32,9
Landbúnaðarvörur 1.316,8 1.094,8 6.059,8 7.078,6 16,8
Iðnaðarvörur 22.264,7 26.814,6 86.281,1 100.281,9 16,2
Aðrar vörur 858,6 935,7 3.457,2 4.768,0 37,9
           
Innflutningur alls fob 51.700,4 62.282,8 197.778,9 230.580,5 16,6
Matvörur og drykkjarvörur 4.607,9 5.628,4 16.447,6 19.088,6 16,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 16.138,2 15.357,8 57.557,2 62.258,2 8,2
Eldsneyti og smurolíur 3.306,8 7.077,2 17.408,2 28.029,5 61,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 13.001,1 13.757,2 46.643,8 51.454,7 10,3
Flutningatæki 8.196,9 12.956,2 33.405,4 40.215,8 20,4
Neysluvörur ót.a. 6.423,0 7.488,5 26.212,0 29.258,5 11,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 26,4 17,5 104,7 275,2 162,8
           
Vöruviðskiptajöfnuður -10.456,8 -15.698,7 -47.709,7 -46.311,8 -2,9


¹
Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.