Vöruviðskiptajöfnuður
Í apríl voru fluttar út vörur fyrir 47,2 milljarða króna og inn fyrir 53,5 milljarða króna fob (57,2 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,3 milljarða króna. Í apríl 2015 voru vöruviðskiptin hagstæð um 3,3 milljarða króna á gengi hvors árs¹.
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 179,8 milljarða króna en inn fyrir 210,7 milljarða króna fob (224,2 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 30,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin hagstæð um 8,9 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 39,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 41,7 milljörðum króna lægra, eða 18,8%, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 26,3% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,8% lægra en á sama tíma árið áður.
Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 1,9 milljörðum króna lægra, eða 0,9%, á gengi hvors árs¹, en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2015 og 2016 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra | ||||
Apríl | Jan.-apríl | ári á gengi hvors árs, | |||
2015 | 2016 | 2015 | 2016 | % jan.-apríl | |
Útflutningur alls fob | 56.813,9 | 47.219,5 | 221.447,1 | 179.774,6 | -18,8 |
Sjávarafurðir | 23.392,3 | 19.414,0 | 88.784,8 | 77.402,3 | -12,8 |
Landbúnaðarvörur | 940,1 | 1.665,9 | 4.841,1 | 5.800,8 | 19,8 |
Iðnaðarvörur | 31.728,7 | 25.385,5 | 124.070,6 | 91.480,7 | -26,3 |
Aðrar vörur | 752,8 | 754,1 | 3.750,6 | 5.090,8 | 35,7 |
Innflutningur alls fob | 53.501,9 | 53.538,2 | 212.530,1 | 210.669,5 | -0,9 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.485,9 | 4.604,3 | 20.167,1 | 17.836,1 | -11,6 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 16.720,8 | 15.457,6 | 64.527,3 | 55.053,1 | -14,7 |
Eldsneyti og smurolíur | 6.330,3 | 4.622,5 | 24.359,9 | 16.403,5 | -32,7 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.165,5 | 11.620,8 | 40.479,9 | 48.361,6 | 19,5 |
Flutningatæki | 8.492,9 | 10.306,1 | 36.654,4 | 43.786,3 | 19,5 |
Neysluvörur ót.a. | 6.898,7 | 6.843,0 | 25.766,0 | 29.018,3 | 12,6 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 407,8 | 83,8 | 575,5 | 210,6 | -63,4 |
Vöruskiptajöfnuður | 3.311,9 | -6.318,7 | 8.917,1 | -30.894,8 | . |
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.