FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. SEPTEMBER 2018

Vöruviðskiptajöfnuður
Í ágúst 2018 voru fluttar út vörur fyrir 50,9 milljarða króna og inn fyrir 67,9 milljarða króna fob (72,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17 milljarða króna. Í ágúst 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 6,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í ágúst 2018 var því 10,1 milljarði króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 20,1 milljarði króna samanborið við 6,8 milljarða króna halla í ágúst 2017.

 Á tímabilinu janúar til ágúst 2018 voru fluttar út vörur fyrir 388,4 milljarða króna en inn fyrir 501,7 milljarða (535,3 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því 113,3 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 113,9 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn á tímabilinu janúar til ágúst er því 0,6 milljörðum króna minni en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 101,8 milljörðum króna, samanborið við 102,3 milljarða króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu átta mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 58,4 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 17,2% á gengi hvors árs.¹ Iðnaðarvörur voru 53,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 14,2% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 39,2% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,1% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var öllum undirliðum sjávarafurða en aukninguna á milli ára má meðal annars rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.

Innflutningur
Á fyrstu átta mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 57,8 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 13,0% á gengi hvors árs.¹ Mestu munaði um innflutning á eldsneyti, hrá- og rekstrarvörum og fjárfestingu í flugvélum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til ágúst 2017 og 2018    
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Ágúst Janúar-Ágúst ári á gengi hvors árs, %
  2017 2018 2017 2018 jan-ág
           
Útflutningur alls fob 45.161,4 50.890,1 329.974,0 388.412,6                17,71    
Sjávarafurðir 18.246,0 18.953,8 123.786,9 152.336,7                 23,06    
Landbúnaðarvörur 1.892,9 1.091,9 13.001,1 12.348,4 -                 5,02    
Iðnaðarvörur 24.345,5 26.344,6 181.175,3 206.987,7                 14,25    
Aðrar vörur 677,0 4.499,8 12.010,7 16.739,8                 39,37    
           
Innflutningur alls fob 52.056,8 67.912,7 443.910,1 501.730,4                13,03    
Matvörur og drykkjarvörur 5.111,2 5.395,7 37.568,0 40.249,6                   7,14    
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.708,4 19.794,5 118.463,7 135.497,4                 14,38    
Eldsneyti og smurolíur 5.379,0 13.426,2 46.128,3 73.728,3                 59,83    
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.652,8 14.097,2 94.704,9 105.954,9                 11,88    
Flutningatæki 8.061,2 7.453,5 89.258,4 82.853,3 -                 7,18    
Neysluvörur ót.a. 8.100,5 7.685,1 57.581,6 60.523,5                   5,11    
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 43,7 60,6 205,2 2.923,3             1.324,61    
           
Vöruviðskiptajöfnuður -6.895,4 -17.022,7 -113.936,1 -113.317,8 -                0,01    

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.