FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2016

Vöruviðskiptajöfnuður
Í ágúst voru fluttar út vörur fyrir 40,6 milljarða króna og inn fyrir 53,6 milljarða króna fob (57,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 13,0 milljarða króna. Í ágúst 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 1,8 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrstu átta mánuðum ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 359,4 milljarða króna en inn fyrir 445,7 milljarða króna fob (474,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 86,3 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 8,7 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 77,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu átta mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 72,5 milljörðum króna lægra, eða 16,8%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,9% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,5% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Á fyrstu átta mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 5,2 milljörðum króna hærra, eða 1,2%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á fjárfestingavörum og flutningatækjum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–ágúst 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Ágúst Jan.–ágúst ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–ágúst
           
Útflutningur alls fob 47.116,1 40.617,8 431.844,2 359.369,4 -16,8
Sjávarafurðir 18.495,8 18.022,0 178.859,8 156.525,2 -12,5
Landbúnaðarvörur 888,7 1.608,4 8.124,5 10.505,4 29,3
Iðnaðarvörur 25.357,9 19.316,8 233.991,8 180.500,6 -22,9
Aðrar vörur 2.373,8 1.670,6 10.868,2 11.838,1 8,9
           
Innflutningur alls fob 48.894,4 53.615,2 440.509,7 445.716,6 1,2
Matvörur og drykkjarvörur 5.755,4 5.284,1 45.041,6 38.668,4 -14,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.429,6 13.018,9 129.544,8 114.024,1 -12,0
Eldsneyti og smurolíur 6.505,1 8.691,7 57.077,8 46.346,9 -18,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.158,2 12.312,0 88.039,2 97.226,4 10,4
Flutningatæki 4.457,0 6.855,1 68.541,7 90.507,0 32,0
Neysluvörur ót.a. 6.328,6 7.438,5 51.151,4 58.585,7 14,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 260,4 15,0 1.113,2 358,1 -67,8
           
Vöruskiptajöfnuður -1.778,3 -12.997,4 -8.665,5 -86.347,2 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.