Vöruviðskiptajöfnuður
Í nóvember 2018 voru fluttar út vörur fyrir 53,8 milljarða króna og inn fyrir 72,5 milljarða króna fob (77,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæplega 18,8 milljarða króna. Í nóvember 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 10,9 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í nóvember 2018 var því 7,9 milljörðum króna meiri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 18,2 milljörðum króna samanborið við 10,7 milljarða króna halla í nóvember 2017.

Á tímabilinu janúar til nóvember 2018 voru fluttar út vörur fyrir 549 milljarða króna en inn fyrir tæpa 713 milljarða (760,4 milljarða króna cif). Halli á vöruviðskiptum við útlönd nam því rúmum 163,9 milljörðum króna reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma fyrir ári voru vöruviðskiptin óhagstæð um 152,8 milljarða á gengi hvors árs. Vöruviðskiptahallinn á tímabilinu janúar til nóvember er því 11,1 milljarði króna meiri en á sama tíma fyrir ári. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn 148,6 milljörðum króna, samanborið við 141,4 milljarða króna á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruútflutnings 72,6 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 15,2% á gengi hvors árs.¹ Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,1% hærra en á sama tíma árið áður. Hækkunina á milli ára má fyrst og fremst rekja til útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 39,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 19,2% hærra en á sama tíma árið áður. Aukning var í öllum undirliðum sjávarafurða milli ára sem meðal annars má rekja til sjómannaverkfalls í byrjun árs 2017.

Innflutningur
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 83,7 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 13,3% á gengi hvors árs.¹ Mestu munaði um innflutning á eldsneyti og unnum hrá- og rekstrarvörum.

Vöruviðskiptajöfnuður

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til nóvember 2017 og 2018
Millj. kr. á gengi hvors ársBreytingar frá fyrra
Nóvember Janúar-nóvemberári á gengi hvors árs, %
 20172018 2017 2018jan-nóv
Útflutningur alls fob45.789,153.775,8476.400,8549.030,615,2
Sjávarafurðir18.293,720.272,7183.253,6218.414,119,2
Landbúnaðarvörur1.849,82.652,218.010,118.423,42,3
Iðnaðarvörur24.640,929.514,0255.048,5293.471,415,1
Aðrar vörur1.004,71.336,920.088,518.721,7-6,8
Innflutningur alls fob56.669,972.545,2629.219,2712.956,613,3
Matvörur og drykkjarvörur4.996,45.672,352.628,258.585,311,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a.14.850,223.324,2166.751,9200.437,120,2
Eldsneyti og smurolíur6.736,711.356,873.274,0108.007,247,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki)13.372,314.808,1135.790,9145.977,07,5
Flutningatæki7.135,77.470,0115.523,3108.015,1-6,5
Neysluvörur ót.a.9.554,99.870,684.985,588.926,24,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur)23,743,2265,43.008,81033,6
Vöruviðskiptajöfnuður-10.880,8-18.769,4-152.818,4-163.926,1 7,3

1) Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum. Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni