FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. FEBRÚAR 2018

Vöruviðskiptajöfnuður
Í janúar 2018 voru fluttar út vörur fyrir 48,4 milljarða króna og inn fyrir 54,1 milljarð króna fob (57,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 5,7 milljarða króna. Í janúar 2017 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 8,6 milljarða króna á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn í janúar 2018 var því 2,9 milljörðum króna lægri en á sama tíma árið áður. Án skipa og flugvéla nam vöruviðskiptahallinn í mánuðinum 2,7 milljörðum króna samanborið við 6,4 milljarða króna í janúar 2017.

Útflutningur
Í janúar 2018 var verðmæti vöruútflutnings 10,8 milljörðum króna hærri en í janúar árið áður, eða 28,8% á gengi hvors árs¹. Aukninguna má aðallega rekja til aukins útflutnings á iðnaðarvörum og sjávarafurðum.

Innflutningur
Í janúar 2018 var verðmæti vöruinnflutnings 7,9 milljörðum króna hærri en í janúar árið áður, eða 17,1% á gengi hvors árs¹. Innflutningur jókst mest á eldsneyti og smurolíu og fjárfestingavörum (þó ekki flutningstækjum).

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar 2017 og 2018
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Janúar ári á gengi hvors árs,
  2017 2018  % jan.– nóv.
       
Útflutningur alls fob 37.562,4 48.397,6 28,8%
Sjávarafurðir 13.719,4 17.875,7 30,3%
Landbúnaðarvörur 1.580,6 2.277,9 44,1%
Iðnaðarvörur 21.449,2 26.907,4 25,4%
Aðrar vörur 813,2 1.336,5 64,4%
       
Innflutningur alls fob 46.184,7 54.099,9 17,1%
Matvörur og drykkjarvörur 3.679,0 4.032,6 9,6%
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.181,1 12.020,8 -1,3%
Eldsneyti og smurolíur 4.338,3 7.870,6 81,4%
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.249,0 14.322,5 27,3%
Flutningatæki 8.221,0 9.000,7 9,5%
Neysluvörur ót.a. 6.484,3 6.793,9 4,8%
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 32,0 58,9 83,8%
       
Vöruskiptajöfnuður -8.622,2 -5.702,3 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.