Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir febrúar 2019 nam fob verðmæti vöruútflutnings 44,8 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 60,1 milljarði króna. Vöruviðskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 15,3 milljarða króna. Í febrúar 2018 voru vöruviðskiptin hins vegar óhagstæð um 14 milljarða króna á gengi hvors árs. Viðskipti með skip og flugvélar höfðu ekki áhrif á vöruviðskiptajöfnuðinn í febrúar 2019 en vöruskiptajöfnuður án skipa og flugvéla var óhagstæður um 7,4 milljarða í sama mánuði árið áður.

Í febrúar 2019 var verðmæti vöruútflutnings 1,2 milljörðum króna lægri en í febrúar 2018 eða 2,7% á gengi hvors árs. Óverulegar breytingar eru í öllum flokkum útflutnings.

Verðmæti vöruinnflutnings í febrúar 2019 var 0,1 milljarði króna hærri en í febrúar 2018 eða 0,2% á gengi hvors árs. Aukning var í innflutningi á fjárfestingarvörum en á móti kom lækkun í innflutningi á flutningatækjum.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Útflutningur, innflutningur og vöruviðskiptajöfnuður 2015-2019

Talnaefni