FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. SEPTEMBER 2018

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir ágúst 2018 nam fob verðmæti vöruútflutnings 50,9 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 65,4 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,5 milljarða króna.

Í ágúst 2018 var verðmæti vöruútflutnings 5,7 milljörðum króna hærra en í ágúst 2017 eða 12,7% á gengi hvors árs. Hækkunina á milli ára má að hluta til rekja til aukins verðmætis í útflutningi á kísiljárni og áli. Einnig jókst verðmæti útflutnings í flokknum aðrar vörur.

Verðmæti vöruinnflutnings í ágúst 2018 var 13,3 milljörðum króna hærri en í ágúst 2017 eða 25,6% á gengi hvors árs. Munurinn á milli ára skýrist aðallega af auknum innflutningi á fjárfestingavörum og eldsneyti.

Hafa skal í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.