FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 18. ÁGÚST 2017

Vöruviðskiptin við útlönd á fyrri helmingi ársins 2017 eru nú endurútgefin, vegna nýrra upplýsinga um innflutning á skipum.

Vöruviðskiptajöfnuður
Í júní voru fluttar út vörur fyrir 45,2 milljarða króna og inn fyrir 59,8 milljarða króna fob (63,6 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,6 milljarða króna. Í júní 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 14,7 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrri helmingi ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 244,4 milljarða króna en inn fyrir 330,4 milljarða króna fob (352,0 milljarða króna cif). Í fyrri útgáfu nam innflutningurinn 325,5 milljörðum króna fob (347,2 milljörðum króna cif).

Samkvæmt endurútgefnum tölum var því halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 85,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 64,2 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því rúmum 21,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrri helmingi ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 30,5 milljörðum króna lægra, eða 11,1%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,0% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 21,9% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Á fyrri helmingi ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 8,7 milljörðum króna lægra, eða 2,6%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á flugvélum og neysluvörum saman en á móti jókst innflutningur á skipum, eldsneyti, fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júní 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Júní Jan.–júní ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.–júní
           
Útflutningur alls fob 48.353,4 45.216,0 274.932,9 244.417,6 -11,1
Sjávarafurðir 20.569,2 17.058,9 118.862,2 92.885,8 -21,9
Landbúnaðarvörur 1.106,4 1.796,2 8.173,2 10.200,0 24,8
Iðnaðarvörur 25.641,8 24.703,3 139.169,4 134.828,8 -3,1
Aðrar vörur 1.036,1 1.657,6 8.728,0 6.503,1 -25,5
           
Innflutningur alls fob 63.032,7 59.815,3 339.099,7 330.353,9 -2,6
Matvörur og drykkjarvörur 5.414,4 5.282,3 28.713,2 26.852,8 -6,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.615,5 15.967,9 85.661,4 90.128,7 5,2
Eldsneyti og smurolíur 8.541,6 6.814,4 30.485,2 32.644,7 7,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 12.051,5 11.182,1 73.607,3 72.357,4 -1,7
Flutningatæki 14.986,9 13.896,3 75.640,7 67.737,6 -10,4
Neysluvörur ót.a. 7.347,3 6.645,8 44.680,5 40.481,0 -9,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 75,5 26,5 311,3 151,6 -51,3
           
Vöruskiptajöfnuður -14.679,4 -14.599,4 -64.166,9 -85.936,3 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.