FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. APRÍL 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 56,1 milljarði króna í mars 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og fob verðmæti vöruinnflutnings 65,3 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,2 milljarða króna. Í mars 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 8,8 milljarða króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 3,5 milljörðum hærra í mars 2020 en í mars 2019, eða 6,5% á gengi hvors árs. Aukin viðskipti voru í öllum flokkum, mest í sjávarafurðum.

Verðmæti vöruinnflutnings í mars 2020 var 3,8 milljörðum hærra en í mars 2019, eða 6,2% á gengi hvors árs. Hækkun var í öllum flokkum nema í eldsneyti og smurolíum og fjárfestingavöru - þó ekki í flutningstækjum.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281157 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.