FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 07. ÁGÚST 2020

Verðmæti vöruútflutnings (fob) nam 46,8 milljörðum króna í júlí 2020 samkvæmt bráðabirgðatölum og verðmæti vöruinnflutnings (fob) 59,2 milljörðum króna. Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,4 milljarða króna. Í júlí 2019 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 20,1 milljarð króna á gengi hvors árs.

Verðmæti vöruútflutnings var 4,7 milljörðum króna lægra í júlí 2020 en í júlí 2019 eða sem nemur 9,2% á gengi hvors árs. Mest var lækkunin í útflutningi á sjávarafurðum.

Verðmæti vöruinnflutnings í júlí 2020 var 12,4 milljörðum króna lægra en í júlí 2019 eða 17,3% á gengi hvors árs. Lækkunina má aðallega rekja til minni innflutnings á eldsneyti og fjárfestingarvörum.

Vert er að hafa í huga að hér er um bráðabirgðatölur að ræða. Niðurstöður gætu breyst eftir endurskoðun í lok mánaðar.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.