FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. OKTÓBER 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í september voru fluttar út vörur fyrir 45 milljarða króna og inn fyrir 65,6 milljarða króna fob (69,9 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 20,6 milljarða króna. Í september 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 3,3 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Janúar-september 2017 voru fluttar út vörur fyrir 371,5 milljarða króna en inn fyrir 507,7 milljarða króna fob (541,1 milljarð króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 136,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 90,1 milljarð á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn janúar-september 2017 var því 46,1 milljarði króna hærri en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Janúar-september 2017 var verðmæti vöruútflutnings 34,3 milljörðum króna lægra, eða 8,4% á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,5% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,8% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 18,5% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski.

Innflutningur
Janúar-september 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 11,8 milljörðum króna hærra, eða 2,4% á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum, skipum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–september 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  September Jan.– september ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.– september
           
Útflutningur alls fob 46.332,4 45.001,3 405.756,9 371.482,6 -8,4
Sjávarafurðir 19.918,0 20.202,4 176.751,0 144.057,8 -18,5
Landbúnaðarvörur 1.282,0 1.257,1 11.538,5 14.075,0 22,0
Iðnaðarvörur 23.812,1 22.378,4 204.306,8 203.283,3 -0,5
Aðrar vörur 1.320,2 1.163,4 13.160,6 10.066,6 -23,5
           
Innflutningur alls fob 49.609,9 65.636,9 495.894,9 507.700,9 2,4
Matvörur og drykkjarvörur 5.644,6 4.836,6 44.309,3 42.369,7 -4,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 14.233,0 17.532,9 128.194,1 135.927,0 6,0
Eldsneyti og smurolíur 6.557,7 12.103,6 52.923,0 58.196,6 10,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.971,8 14.548,4 107.165,2 109.341,8 2,0
Flutningatæki 5.935,6 8.377,1 97.163,3 97.533,8 0,4
Neysluvörur ót.a. 7.239,6 8.229,0 65.768,7 64.117,2 -2,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 27,7 9,3 371,3 214,9 -42,1
           
Vöruskiptajöfnuður -3.277,5 -20.635,7 -90.138,0 -136.218,2 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.