FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í október voru fluttar út vörur fyrir 54 milljarða króna og inn fyrir 62,4 milljarða fob (66,4 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 8,4 milljarða króna. Í október 2016 voru vöruviðskiptin hagstæð um 1,5 milljarða á gengi hvors árs.¹

Janúar–október 2017 voru fluttar út vörur fyrir 427 milljarða króna en inn fyrir 570,2 milljarða fob (607,6 milljarð króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 143,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 88,6 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptahallinn janúar–október 2017 var því 54,6 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Janúar–október 2017 var verðmæti vöruútflutnings 27,9 milljörðum króna lægra en á sama tíma árið áður, eða 6,1% á gengi hvors árs.¹ Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1% hærra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli jókst en útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman. Sjávarafurðir voru 38,6% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 17,4% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á frystum flökum og ferskum fiski.

Innflutningur
Janúar–október 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 26,7 milljörðum króna hærra en á sama tímabili árið áður, eða 4,9% á gengi hvors árs.¹ Innflutningur á skipum, hrá- og rekstrarvörum og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum saman.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–október 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Október Jan.– Okt. ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.– okt.
           
Útflutningur alls fob 49.157,0 54.017,5 454.913,9 427.038,2 -6,1
Sjávarafurðir 23.052,3 20.970,3 199.803,3 165.026,9 -17,4
Landbúnaðarvörur 1.692,8 1.903,7 13.231,3 15.948,0 20,5
Iðnaðarvörur 22.078,5 25.237,2 226.385,2 228.649,8 1,0
Aðrar vörur 2.333,5 5.906,3 15.494,1 17.413,5 12,4
           
Innflutningur alls fob 47.625,6 62.417,8 543.520,5 570.204,8 4,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.468,2 5.216,6 48.777,6 47.586,0 -2,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.939,1 15.781,1 140.133,2 151.804,3 8,3
Eldsneyti og smurolíur 6.301,6 8.295,6 59.224,6 66.492,2 12,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.805,4 13.186,5 117.970,6 122.517,3 3,9
Flutningatæki 6.720,9 10.737,9 103.884,2 108.265,7 4,2
Neysluvörur ót.a. 7.376,7 9.172,9 73.145,4 73.297,2 0,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 13,6 27,2 384,9 242,1 -37,1
           
Vöruskiptajöfnuður 1.531,4 -8.400,4 -88.606,5 -143.166,6 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.