FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. JANÚAR 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í nóvember voru fluttar út vörur fyrir 41,0 milljarð króna og inn fyrir 52,7 milljarða króna fob (56,3 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 11,7 milljarða króna. Í nóvember 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 500 milljónir króna á gengi hvors árs.¹

Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2016 voru fluttar út vörur fyrir 495,9 milljarða króna en inn fyrir 595,7 milljarða króna fob (634,4 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 99,8 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 21,3 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 78,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruútflutnings 82,1 milljarði króna lægra, eða 14,2%, á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 49,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 19,6% lægra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 11,6% lægra en á sama tíma árið áður.

Innflutningur
Á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 3,7 milljörðum króna lægra, eða 0,6%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–nóvember 2015 og 2016
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Nóvember Jan.–nóvember ári á gengi hvors árs,
  2015 2016 2015 2016  % jan.–nóvember
           
Útflutningur alls fob 51.495,7 41.016,2 578.011,1 495.899,4 -14,2
Sjávarafurðir 23.769,7 17.388,3 245.181,6 216.849,5 -11,6
Landbúnaðarvörur 1.483,3 1.879,9 11.946,4 15.415,0 29,0
Iðnaðarvörur 25.300,5 20.441,3 306.865,2 246.836,0 -19,6
Aðrar vörur 942,2 1.306,8 14.017,9 16.799,0 19,8
           
Innflutningur alls fob 51.994,1 52.675,5 599.314,4 595.650,3 -0,6
Matvörur og drykkjarvörur 5.127,7 4.579,2 60.562,8 53.358,7 -11,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.455,7 14.507,0 172.602,8 154.679,0 -10,4
Eldsneyti og smurolíur 5.834,2 5.117,8 78.894,2 64.342,9 -18,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 13.282,0 12.566,0 125.375,9 130.589,1 4,2
Flutningatæki 6.485,9 7.808,1 86.898,7 110.986,2 27,7
Neysluvörur ót.a. 7.757,7 8.011,8 74.066,9 81.209,8 9,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 51,0 85,7 913,1 484,5 -46,9
           
Vöruskiptajöfnuður -498,4 -11.659,3 -21.303,3 -99.750,9 .


¹
Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.