FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2017

Vöruviðskiptajöfnuður
Í maí voru fluttar út vörur fyrir rúma 49,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 68,7 milljarða króna fob (73,1 milljarð króna cif). Vöruviðskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 19,3 milljarða króna. Í maí 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 17,3 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Fyrstu fimm mánuði ársins 2017 voru fluttar út vörur fyrir 199,2 milljarða króna en inn fyrir 266,4 milljarða króna fob (284,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 67,2 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 49,5 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 17,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2017 var verðmæti vöruútflutnings 27,4 milljörðum króna lægra, eða 12,1%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,0% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 38,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 22,9% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 9,6 milljörðum króna lægra, eða 3,5%, á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Aðallega dróst innflutningur á flugvélum og neysluvörum saman en á móti jókst innflutningur á skipum, eldsneyti, fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–maí 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Maí Jan.–maí ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.–maí
           
Útflutningur alls fob 46.784,0 49.313,3 226.579,5 199.201,6 -12,1
Sjávarafurðir 20.868,0 21.555,9 98.293,0 75.826,9 -22,9
Landbúnaðarvörur 1.266,0 2.324,1 7.066,8 8.403,8 18,9
Iðnaðarvörur 22.048,8 23.864,2 113.527,7 110.125,5 -3,0
Aðrar vörur 2.601,2 1.569,1 7.692,0 4.845,5 -37,0
           
Innflutningur alls fob 64.037,7 68.658,1 276.067,0 266.442,2 -3,5
Matvörur og drykkjarvörur 5.453,9 5.123,1 23.298,8 21.570,7 -7,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.996,1 16.612,8 71.045,9 74.166,5 4,4
Eldsneyti og smurolíur 5.540,1 8.422,2 21.943,6 25.830,4 17,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 13.269,5 14.695,7 61.555,9 61.364,1 -0,3
Flutningatæki 15.436,4 16.173,1 60.653,8 49.563,9 -18,3
Neysluvörur ót.a. 8.316,6 7.610,8 37.333,2 33.821,6 -9,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 25,2 20,3 235,8 125,1 -47,0
           
Vöruskiptajöfnuður -17.253,8 -19.344,8 -49.487,5 -67.240,5 .

¹ Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.