FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2017

Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 31. ágúst 2017 12:54 frá upprunalegri útgáfu.

Vöruviðskiptajöfnuður
Í júlí voru fluttar út vörur fyrir 35,7 milljarða króna og inn fyrir 58,6 milljarða króna fob (62,5 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 22,8 milljarða króna. Í júlí 2016 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 9,8 milljarða króna á gengi hvors árs.¹

Janúar-júlí 2017 voru fluttar út vörur fyrir 280,0 milljarða króna en inn fyrir 388,8 milljarða króna fob (414,4 milljarða króna cif). Því var halli á vöruviðskiptum við útlönd sem nam tæpum 108,9 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruviðskiptin óhagstæð um 73,9 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn janúar-júlí 2017 var því 34,9 milljörðum króna hærri en á sama tíma árið áður. Einnig var hann hærri en halli alls ársins 2016, sem nam 108,2 milljarði króna á gengi ársins 2016.

Útflutningur
Janúar-júlí 2017 var verðmæti vöruútflutnings 38,9 milljörðum króna lægra, eða 12,2% á gengi hvors árs,1 en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,3% lægra en á sama tíma árið áður. Útflutningur á lyfjum og lækningatækjum dróst saman en útflutningur á áli jókst. Sjávarafurðir voru 37,7% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 23,9% lægra en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum.

Innflutningur
Janúar-júlí 2017 var verðmæti vöruinnflutnings 3,9 milljörðum króna hærra, eða 1% á gengi hvors árs,¹ en á sama tímabili árið áður. Innflutningur á hrá- og rekstrarvörum, skipum, eldsneyti, og fólksbílum jókst en á móti dróst innflutningur á flugvélum og neysluvörum saman.

 

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–júlí 2016 og 2017
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
  Júlí Jan.–júlí ári á gengi hvors árs,
  2016 2017 2016 2017  % jan.–júlí
           
Útflutningur alls fob 43.861,5 35.719,1 318.807,1 279.956,9 -12,2
Sjávarafurðir 19.709,4 12.737,0 138.776,0 105.622,7 -23,9
Landbúnaðarvörur 697,9 719,1 8.683,1 10.919,0 25,8
Iðnaðarvörur 22.014,6 21.162,1 161.178,2 155.811,0 -3,3
Aðrar vörur 1.439,5 1.101,0 10.169,8 7.604,1 -25,2
           
Innflutningur alls fob 53.653,5 58.552,7 392.737,3 388.834,4 14,7
Matvörur og drykkjarvörur 4.669,1 5.573,1 33.382,0 32.426,1 12,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.323,2 13.588,7 100.989,6 103.705,9 21,1
Eldsneyti og smurolíur 7.178,6 8.068,9 37.663,8 40.713,7 33,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.263,8 11.834,5 84.908,7 84.132,8 14,2
Flutningatæki 8.741,4 11.914,2 84.370,0 79.649,3 5,3
Neysluvörur ót.a. 6.459,6 7.562,9 51.094,1 48.044,8 7,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 17,9 10,3 329,2 161,9 -40,8
           
Vöruskiptajöfnuður -9.792,1 -22.833,5 -73.930,1 -108.877,4 .

¹ Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.

Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.