Vöruviðskiptajöfnuður
Í desember voru fluttar út vörur fyrir 41,4 milljarða króna og inn fyrir 49,5 milljarða króna fob (52,8 milljarða króna cif). Vöruviðskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 8,1 milljarð króna. Í desember 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 9,3 milljarða króna á gengi hvors árs.¹
Árið 2016 voru fluttar út vörur fyrir 537,3 milljarða króna en inn fyrir 645,7 milljarða króna fob (687,8 milljarða króna cif). Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd sem nam 108,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Árið 2015 voru vöruviðskiptin óhagstæð um 30,6 milljarða á gengi hvors árs.¹ Vöruviðskiptajöfnuðurinn var því 77,8 milljörðum króna lakari árið 2016 en árið áður.
Útflutningur
Árið 2016 var verðmæti vöruútflutnings 88,7 milljörðum króna lægra, eða 14,2%, á gengi hvors árs,¹ en árið 2015. Iðnaðarvörur voru 50,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 18,3% lægra en árið 2015, aðallega vegna lægra álverðs. Sjávarafurðir voru 43,1% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,4% lægra en árið 2015.
Innflutningur
Árið 2016 var verðmæti vöruinnflutnings 10,9 milljörðum króna lægra, eða 1,7%, á gengi hvors árs,¹ en árið 2015. Aðallega dróst innflutningur á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti saman en á móti jókst innflutningur á flutningatækjum.
Lokatölur fyrir árið 2016 verða birtar 24. maí 2017.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–desember 2015 og 2016 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra | ||||
Desember | Jan.–desember | ári á gengi hvors árs, | |||
2015 | 2016 | 2015 | 2016 | % jan.–desember | |
Útflutningur alls fob | 48.080,8 | 41.422,2 | 626.091,9 | 537.342,1 | -14,2 |
Sjávarafurðir | 19.483,8 | 14.977,2 | 264.665,4 | 231.847,2 | -12,4 |
Landbúnaðarvörur | 1.321,2 | 1.710,9 | 13.267,6 | 17.125,9 | 29,1 |
Iðnaðarvörur | 24.195,0 | 23.580,6 | 331.060,2 | 270.416,5 | -18,3 |
Aðrar vörur | 3.080,7 | 1.153,5 | 17.098,7 | 17.952,4 | 5,0 |
Innflutningur alls fob | 57.347,5 | 49.498,2 | 656.661,9 | 645.721,4 | -1,7 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.474,0 | 4.062,7 | 65.036,8 | 57.421,3 | -11,7 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 12.280,0 | 13.854,2 | 184.882,8 | 168.490,4 | -8,9 |
Eldsneyti og smurolíur | 4.229,6 | 5.525,2 | 83.123,8 | 69.867,6 | -15,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 12.006,2 | 10.128,5 | 137.382,1 | 140.637,1 | 2,4 |
Flutningatæki | 16.994,7 | 8.444,5 | 103.893,4 | 120.139,6 | 15,6 |
Neysluvörur ót.a. | 7.332,0 | 7.434,2 | 81.398,8 | 88.631,9 | 8,9 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 31,1 | 48,9 | 944,2 | 533,4 | -43,5 |
Vöruskiptajöfnuður | -9.266,8 | -8.076,1 | -30.570,1 | -108.379,3 | . |
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruviðskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruviðskiptum.
Mánaðarlegar tölur um vöruviðskipti líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.